Lykilmenn Liverpool með um helgina

Darwin Núnez verður með um helgina.
Darwin Núnez verður með um helgina. AFP/Paul Ellis

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri karlaliðs Liverpool, tjáði blaðamönnum að lykilmennirnir Ibrahima Konaté og Darwin Núnez verða með gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. 

Þá æfði Curtis Jones, sem hefur verið fjarverandi undanfarnar vikur, einnig í dag og styttist því í hann. 

Trent Alexander-Arnold, Diogo Jota og Alisson munu þá taka þátt í nokkrum æfingum með liðinuí næstu viku. 

Eru því flestir lykilmenn Liverpool að snúa til baka á besta tíma. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert