Schumacher gómaður hraðfara

Schumacher var langt yfir leyfilegum hraða. stækka

Schumacher var langt yfir leyfilegum hraða. ap

Þýska umferðarlögreglan gómaði Michael Schumacher fyrir hraðakstur skammt frá uppeldisstöðvum hans í Kerpen í Þýskalandi. Var hann sektaður og sviptur þremur aksturspunktum.

Schumacher var á ferð á Audi blæjubíl, en ekki Ferrari, og fregnir í Þýskalandi gefa til kynna að hann hafi mælst á 140 km/klst hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði var 100 km.  

Schumacher er ráðgjafi Ferrari og tilraunaökuþór á stundum. Þá hefur hann verið andlit margskonar aðgerða af hálfu Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) í þágu umferðaröryggis, m.a. herferða gegn hraðakstri.

Ítalska íþróttadagblaðið La Gazzetta dello Sport segir að ekki hafi vantað nema eina 7 km upp á að Schumacher hafi misst ökuréttindi sjálfkrafa. Til þess hefði hann þurft að aka á yfir 146 km/klst.

„Mér þykir þetta virkilega leitt, þetta er mér ekki samboðið. Hraðakstur á heima á kappakstursbrautunum eingöngu,“ hefur útbreiddasta blað Þýskalands, Bild,  eftir Schumacher um atvikið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is