Daniel Ricciardo hefur staðfest að hann keppi fyrir Red Bull að minnsta kosti út árið 2018.
Ricciardo varð 27 ára í gær og gaf hann til kynna fyrir um þremur vikum, að hann myndi fara að líta í kringum sig eftir öðrum vinnustað ef Red Bull gæti ekki veitt honum tryggingu fyrir því að hann myndi keppa um heimsmeistaratitil ökumanna á næstu árum.
Við því brást liðsstjórinn Christian Horner með því að minna á að Ricciardo væri bundinn liðinu út 2018. Spurður um málið í Spielberg í Austurríki í gær staðfesti ökumaðurinn svo að hann yrði þennan tíma hjá Red Bull. Vildi hann að öðru leyti ekki svara spurningum er viku að samningamálum hans.
„Það er ekkert sem fær málum breytt í ár en horfi maður til næsta árs og lengra fram í tímann þá held ég að [Red Bul] sé í bestri stöðu til að takast á við Mercedes,“ sagði hann.