Aston Martin af einu liði á annað

Merkingar Aston Martin hverfa af bílum Red Bull í desember …
Merkingar Aston Martin hverfa af bílum Red Bull í desember næstkomandi. AFP

Keppnisliðið Racing Point í formúlu-1 skiptir um nafn að lokinni komandi keppnistíð og heita þá Aston Martin F1works team.

Kanadíski auðkýfingurinn Lance Stroll hefur keypt 16,7% hlut í breska lúxus- og sportbílasmiðnum fyrir 182 milljónir sterlingspunda.

Samkomulagið sem Stroll hefur gert gildir til 10 ára. Hann yfirtók á sínum tíma Force India liðsins á miðri keppnistíðinni 2018 og bjargaði því undan fallöxi skiptastjóra.

Aston Martin hefur verið aðal styrktaraðili Red Bull frá 2018 en í ljósi síðustu sviptinga þarf Red Bull að finna sér nýjan styrktaraðila.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert