Valtteri Bottas hjá Mercedes og Daniel Ricciardo hjá Red Bull færast aftur um fimm sæti á rásmarkinu í Silverstone eftir tímatökuna.
Báðir þurfa að sæta slíkri refsingu vegna gírkassaskipta þar sem fyrri gírkassi hafði ekki enst sex mót í röð.
Mercedes ákvað að skipta um gírkassa Bottas eftir að vísbendingar í mælikerfum bentu til þess að samskonar bilun væri yfirvofandi og er leiddi til gírkassaskipta Lewis Hamiltons fyrr en skyldi. Hann tók út afturfærslu í síðasta móti, í Spielberg í Austurríki.