Hjörtur tryggði Þrótti sigur gegn Leikni

Úr leik ÍBV á síðustu leiktíð.
Úr leik ÍBV á síðustu leiktíð. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Fjarðarbyggð og ÍBV úr Vestmannaeyjum áttust við í 1. deild karla í kvöld í knattspyrnu á Eskifirði en ekkert mark var skorað í leiknum. Hjörtur Hjartarson tryggði Þrótti úr Reykjavík 2:1-sigur gegn Leikni á útivelli en Víkingur frá Ólafsvík og Njarðvík gerðu markalaust jafntefli í Ólafsvík.

Um tveggja stiga hiti var á meðan leikurinn fór fram á Eskifirði í kvöld en bæði lið áttu ágæt færi og skot í markstangirnar. Anton Bjarnason leikmaður ÍBV fékk sitt annað gula spjald í leiknum á 80. mínútu og fékk því rautt spjald.

Leiknir R. - Þróttur R. 1:2

Helgi P. Jóhannsson 61. - Arnljótur Ástvaldsson 63., Hjörtur Hjartarson 89.

Víkingur Ó. - Njarðvík 0:0

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert