Rúnar heiðraður fyrir 100 landsleiki

Rúnar Kristinsson ásamt eiginkonu sinni, Ernu Maríu Jónsdóttur.
Rúnar Kristinsson ásamt eiginkonu sinni, Ernu Maríu Jónsdóttur. Eggert Jóhannesson

Rúnar Kristinsson var í kvöld heiðraður af Knattspyrnusambandi Íslands fyrir að vera fyrstur til þess að spila 100 landsleiki.  Rúnar fékk afhent viðurkenningaskjal og málverk, sérstaklega málað fyrir þetta tilefni af listmálaranum Tolla. Frá þessu er greint á vef KSÍ.

Rúnar Kristinsson lék 104 landsleiki fyrir A-landslið karla.  Fyrsta A-landsleikinn lék hann 28. október 1987, þá 18 ára gamall, þegar hann kom inn á sem varamaður í leik gegn Sovétríkjunum.

Hann lék sinn 100. landsleik gegn Litháen á útivelli, 11. júní 2003.  Lauk leiknum með sigri Íslendinga 0:3. Síðasta landsleikur Rúnar var gegn Ítalíu þann 18. ágúst 2004 á Laugardalsvelli þegar að 20.204 áhorfendur sáu Íslendinga leggja Ítala með tveimur mörkum gegn engu.  Rúnar lék 39 landsleiki með yngri landsliðum Íslands og eru því landsleikirnir 143 alls.

Í kvöld voru einnig fjölmargir aðilar sæmdir heiðursmerki KSÍ fyrir frábær störf til handa knattspyrnunnar á Íslandi.  Alls fengu 74 aðilar heiðursmerki, 53 voru sæmdir silfurmerki KSÍ og 24 fengu gullmerki KSÍ. 
  


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert