Markakóngur Spánar til Fenerbache

Güiza fagnar hér með samlöndum sínum.
Güiza fagnar hér með samlöndum sínum. Reuters

Tyrkneska knattspyrnufélagið Fenerbache hefur fest kaup á spænska landsliðsframherjanum Dani Güiza frá Mallorca fyrir upphæð sem talin er nema 15 milljónum evra, eða tæplega 1,9 milljörðum króna.

Güiza, sem er 27 ára, varð markakóngur á Spáni á síðasta tímabili með 27 mörk skoruð og það sem meira er þá var ekkert þeirra úr vítaspyrnu.

Hann hefur leikið 5 landsleiki fyrir Spænska landsliðið og skoraði sitt fyrsta mark í leik við Grikki í vikunni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert