Óvænt ánægja Totti

Þrátt fyrir almennt slæma reynslu gegn enskum liðum getur Totti …
Þrátt fyrir almennt slæma reynslu gegn enskum liðum getur Totti vart beðið eftir að mæta Chelsea. Reuters

Þeir eru sennilega ekki margir fyrirliðarnir sem fagna því neitt sérstaklega að mæta liði Chelsea í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu en það verður líka að segjast að Francisco Totti hjá Roma er ekki eins og allir. Hann getur vart beðið.

Aðspurður um dráttinn í Corriere dello Sport á Ítalíu sagði Totti það óvænta ánægju að fá þá bláklæddu. „Það er frábært að mæta þeim enda einvalalið og alltaf gaman að fara til London og ekki síst fyrir stuðningsmenn okkar. Þetta er frábært tækifæri fyrir okkur að sýna okkur og sanna og ég hlakka bara til.“

Chelsea og Roma hafa aldrei mæst í Meistaradeildinni áður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert