Eyjamær lánuð til Englands

Þórhildur skoraði þrjú mörk í þrettán leikjum með ÍBV í …
Þórhildur skoraði þrjú mörk í þrettán leikjum með ÍBV í sumar. mbl.is

Hin átján ára gamla Þórhildur Ólafsdóttir, leikmaður 1. deildarliðs ÍBV, hefur verið lánuð til enska 1. deildarliðsins Crystal Palace fram til jóla að því er fram kemur á heimasíðu Eyjaliðsins.

Þar kemur einnig fram að forráðamenn Lundúnafélagsins hafi boðið forráðamönnum kvennaliðs ÍBV að koma til Englands og kynna sér aðstæður með samvinnu félaganna í huga.

Þórhildur lék alla þrettán leikina með meistaraflokki ÍBV í sumar og skoraði þrjú mörk.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert