Iniesta frá keppni næstu vikurnar

Andres Iniesta fagnar hér marki Eiðs Smára Guðjohnsen.
Andres Iniesta fagnar hér marki Eiðs Smára Guðjohnsen. Reuters

Spænski landsliðsmaðurinn Andrés Iniesta samherji Eiðs Smára Guðjohnsen í liði Barcelona meiddist á læri á æfingu Katalóníuliðsins í gær og verður frá keppni næstu tvær til þrjár vikurnar.

Iniesta kemur til með að missa af deildarleikjunum á móti Espanyol og Atletico Madrid auk þess sem hann verður fjarri góðu gamni í leiknum gegn Lyon í næstu viku en þá mætast liðin í fyrri viðureign þeirra í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Fjarvera Iniesta ætti að auka möguleika Eiðs Smára á koma við sögu hjá Barcelona-liðinu sem hefur 10 stiga forskot á toppi spænsku 1. deildarinnar, er komið í undanúrslitum í bikarnum og í 16-liða úrslit í Meistaradeildinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert