Landsliðskonan Dóra Stefánsdóttir tryggði LdB Malmö 2:1 sigur ágegn AIK á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Dóra skoraði sigurmarkið stundarfjórðungi fyrir leikslok með skalla og með sigrinum komst LdB Malmö í toppsætið. Liðið hefur 18 stig eins og meistarar Umeå en hefur betri markatölu.