Björn með eitt og fór í markið fyrir Stefán

Björn Bergmann Sigurðarson.
Björn Bergmann Sigurðarson. www.lsk.no

Björn Bergmann Sigurðsson gerði annað mark Lilleström þegar liðið gerði 2:2 jafntefli við Kongsvinger í norsku deildinni í dag. Hann fór síðan í mark liðsins á lokasekúndum leiksins eftir að Stefán Logi Magnússon markvörður fékk rauða spjaldið.

Kongsvinger komst í 2:0 en Björn Bergmann skoraði fínt mark með vinstri af um 20 metra færi á 65. mínútu og heimamönnum tókst síðan að jafna metin. 

Undir lok uppbótartíma fékkk Stefán Logi Magnússon rauða spjaldið fyrir að stöðva mótherja nokkuð utan vítateigs og Björn leysti hann af hólmi í markinu.

Í dönsku úrvalsdeildinni vann SönderjyskE lið Esbjerg 3:0 og þar gerði Ólafur Ingi Skúlason annað mark SönderjyskE en Arnar Darri Pétursson var á bekknum. Arnór Smárason kom inn á hjá Esbjerg á 53. mínútu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert