Birkir skoraði gegn Midtjylland

Birkir Bjarnason skoraði fyrir Viking.
Birkir Bjarnason skoraði fyrir Viking. mbl.is/Eggert

Birkir Bjarnason, leikmaður 21-árs landsliðsins í knattspyrnu, skoraði mark Viking Stavanger í dag þegar liðið gerði jafntefli, 1:1, við danska úrvalsdeildarliðið Midtjylland í æfingamóti á La Manga á Spáni.

Birkir kom Viking yfir strax á 8. mínútu en danska liðið jafnaði, 1:1, á 73. mínútu.

Í lokin var vítaspyrnukeppni og þar skoruðu bæði Birkir og Indriði Sigurðsson fyrir Viking sem vann 5:4.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert