Lagerbäck búinn að velja sinn fyrsta hóp

Veigar Páll Gunnarsson er í æfingahópnum.
Veigar Páll Gunnarsson er í æfingahópnum. Ómar Óskarsson

Lars Lagerbäck, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur boðað 28 leikmenn til æfinga 12.-14. janúar næstkomandi og fara allar æfingarnar fram í knattspyrnuhúsinu Kórnum í Kópavogi. Eingöngu er um að ræða leikmenn sem leika með liðum á Íslandi og í Skandinavíu.

Hópurinn lítur þannig út:

Ari Freyr Skúlason - Sundsvall
Arnór Smárason - Esbjerg
Birkir Bjarnason - Viking FK
Birkir Már Sævarsson - Brann
Bjarni Ólafur Eiríksson - Stabæk
Björn Bergmann Sigurðarson - Lilleström
Eiður Aron Sigurbjörnsson - Örebro
Guðmundur Kristjánsson - Breiðabliki
Gunnar Heiðar Þorvaldsson -  Norrköping
Hallgrímur Jónasson - SönderjyskE
Hannes Þór Halldórsson - KR
Haraldur Björnsson - Val
Haukur Páll Sigurðsson - Val
Helgi Valur Daníelsson - AIK
Hjálmar Jónsson - IFK Gautaborg
Hjörtur Logi Valgarðsson - IFK Gautaborg
Indriði Sigurðsson - Viking FK
Matthías Vilhjálmsson - FH
Pálmi Rafn Pálmason - Lilleström
Ragnar Sigurðsson - FCK
Rúrik Gíslason - OB
Skúli Jón Friðgeirsson - KR
Stefán Logi Magnússon - Lilleström
Steinþór Freyr Þorsteinsson - Sandnes Ulf
Sölvi Geir Ottesen Jónsson - FC Köbenhavn
Theódór Elmar Bjarnason - IFK Göteborg
Veigar Páll Gunnarsson - Vålerenga
Þórarinn Ingi Valdimarsson - ÍBV

Æfingarnar eru utan landsleikjadaga og því er þátttaka leikmanna háð samþykki félagsliða þeirra. Aðeins tveir leikmenn sem Lagerbäck óskaði eftir gátu ekki tekið þátt í æfingabúðunum vegna verkefna með sínu félagsliði, þeir Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Kristján Örn Sigurðsson, sem leika með Hönefoss í Noregi, en lið þeirra er í öðru verkefni einmitt á þessum tíma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert