Messi aldrei þessu vant skúrkur (myndskeið)

Lionel Messi brást bogalistin af vítapunktinum.
Lionel Messi brást bogalistin af vítapunktinum. Reuters

Það er ekki á hverjum degi sem Lionel Messi, besti knattspyrnumaður heims er skúrkur á vellinum en það fékk hann að upplifa í kvöld. Hann gat komið liði sínu, Barcelona yfir gegn Valencia í fyrri undanúrslitaleik spænsku bikarkeppninnar þegar hann fékk tækifæri til að skora úr vítaspyrnu.

Diego Alves markvörður heimamanna varði hinsvegar spyrnuna frá Messi á 56. mínútu í stöðunni 1:1 og þar við sat. Valencia fer því með betri stöðu til Barcelona í seinni leikinn en útlit var fyrir en engu að síður verður verkefnið erfitt.

Jonas skoraði mark Valencia á 27. mínútu en Charles Puyol jafnaði metin fyrir Barcelona átta mínútum síðar.

Alexis Sanchez kom boltanum framhjá Diego Alves, hetju Valencia en …
Alexis Sanchez kom boltanum framhjá Diego Alves, hetju Valencia en boltinn fór einnig framhjá markinu. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert