KSÍ: Aron á að leika fyrir Ísland

Aron Jóhannsson í leik með U-21 árs landsliðinu.
Aron Jóhannsson í leik með U-21 árs landsliðinu. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Knattspyrnusamband Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna Arons Jóhannssonar og ákvörðunar hans um að gefa ekki kost á sér í íslenska landsliðið heldur það bandaríska. KSÍ er ósátt við niðurstöðu málsins og skorar á Aron að endurskoða ákvörðun sína.

Yfirlýsing KSÍ er eftirfarandi:

Aron Jóhannsson á að leika fyrir Ísland

„Aron Jóhannsson er Íslendingur fæddur í Bandaríkjunum 1990 hvar hann bjó fyrstu ár ævinnar.  Foreldrar Arons eru Íslendingar. Aron fékk knattspyrnlegt uppeldi innan vébanda KSÍ hjá Fjölni upp alla yngri flokki (með stuttri dvöl hjá Breiðabliki) og lék síðan í meistaraflokki Fjölnis þar til hann gekk til liðs við AGF í Danmörku 1. september 2010.

Aron Jóhannsson lék 10 landsleiki með U21-liði Íslands 2011 og 2012. Af þessum 10 leikjum voru 8 í Evrópukeppni landsliða og var Aron í byrjunarliði Íslands í þeim öllum.

Alþjóða knattspyrnusambandið (FIFA) heimilar leikmönnum að sækja einu sinni um að skipta um landslið uppfylli þeir tiltekin skilyrði jafnvel þó þeir hafi leikið með yngri landsliðum svo fremi sem þeir hafi ekki tekið þátt í opinberum leik með A-landsliðinu. Eitt þeirra skilyrði sem heimilar leikmönnum skipti er að þeir hafi verið fæddir í landinu sem þeir óska eftir að leika fyrir.

Aron hefur síðasta árið ekki getað svarað kalli A-landsliðsþjálfara KSÍ vegna meiðsla en á sama tíma bárust fregnir um að landsliðsþjálfari Bandaríkjanna hefði áhuga á leikmanninum. Tengsl Arons við knattspyrnu í Bandaríkjunum eru engin.

Í gær birtist yfirlýsing frá Aron þess efnis að leikmaðurinn kjósi að leika fyrir A-landslið Bandaríkjanna. Það eina sem KSÍ hefur fengið ábendingar um frá hagsmunaaðila er að tekjumöguleikar Arons sem leikmanns fyrir Bandaríkin séu allt aðrir og meiri í formi styrktar- og auglýsingatekna en sem leikmanns Íslands. Það er einfaldlega þannig að landsliðsmenn Íslands leika fyrir land og þjóð og hljóta fyrir heiður og sæmd.

 Það er eindregin ósk KSÍ að Aron snúi baki við hugmyndum sínum um að skipta um landslið. Aron er Íslendingur í húð og hár sem við þörfnumst í harðri keppni á alþjóðavettvangi. Aron hefur þegar leikið 10 U21-landsleiki fyrir Ísland og þar á framtíð hans að vera. Vonandi mun almenningur og fjölmiðlar bregast við og skora á Aron að halda áfram að leika fyrir Ísland. KSÍ hefur þegar óskað eftir þátttöku Arons í næsta A-landsleik Íslands gegn Færeyjum 14. ágúst nk. Það eru engin rök fyrir því að Aron afsali sér íslensku ríkisfangi sínu í knattspyrnu.

 Knattspyrnusamband Íslands“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert