Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði eitt marka Kristianstad þegar liðið vann afar dýrmætan 3:0-sigur á Mallbacken í fallbaráttu sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.
Með tapi í dag hefði Kristianstad verið komið niður í fallsæti en liðið er nú fjórum stigum fyrir ofan Mallbacken sem er í næstneðsta sætinu.
Öll mörkin í dag komu í fyrri hálfleik en Margrét Lára skoraði annað markið eftir fyrirgjöf frá Johönnu Rasmussen.