Vel tekið á móti Viðari í Nanjing

Viðar Örn Kjartansson í Nanjing í morgun.
Viðar Örn Kjartansson í Nanjing í morgun. Ljósmynd/@saintyfc

Viðar Örn Kjartansson, knattspyrnumaður frá Selfossi, er kominn til Nanjing í Kína þar sem hann gengur væntanlega frá samningi við Jiangsu Sainty í dag eða á morgun.

Talsverður fjöldi stuðningsmanna liðsins mætti í flugstöðina til að taka á móti Viðari þegar hann kom þangað í morgun ásamt Ólafi Garðarssyni umboðsmanni, og Viðar hafði nóg að gera við að árita fyrir þá eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem birt var á Twitter-síðu stuðningsmanna liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert