Jón Daði skoraði í markaveislu

Jón Daði Böðvarsson skoraði í dag.
Jón Daði Böðvarsson skoraði í dag. Ljósmynd/.viking-fk.no

Jón Daði Böðvarsson var á skotskónum þegar Viking tapaði fyrir Vålerenga á heimavelli, 4:3, í fjörugum leik í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Jón Daði byrjaði á bekknum en kom inná í hálfleik og minnkaði muninn í 3:2 á 69. mínútu, áður en Viking jafnaði metin átta mínútum fyrir leikslok. Sigurmark Vålerenga kom hins vegar á þriðju mínútu uppbótartíma, lokatölur 4:3.

Fyrirliðinn Indriði Sigurðsson spilaði allan leikinn með Viking en Steinþór Freyr Þorsteinsson sat á bekknum eins og Elías Már Ómarsson hjá Vålerenga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert