Jón Daði skoraði í sigri Viking

Jón Daði Böðvarsson með snúning.
Jón Daði Böðvarsson með snúning. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Jón Daði Böðvarsson skoraði annað mark Viking þegar liðið vann Sandefjord 2:0 í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Jón Daði var eini Íslendingurinn í byrjunarliði Viking í dag en Indriði Sigurðsson var í leikbanni. Steinþór Freyr og Björn Daníel komu báðir inn á sem varamenn í leiknum. Þetta var endurkoma Björns, sem hefur verið frá vegna meiðsla síðan í fyrstu umferðinni í byrjun apríl.

Zymer Bytyqi skoraði fyrsta mark Viking eftir stoðsendingu frá Andre Danielsen sem endurtók síðan leikinn þegar hann lagði upp mark Jóns Daða. Viking er í 3. sæti norsku deildarinnar, 4 stigum á undan Vålerenga sem tapaði 2:0 fyrir Aalesund í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert