Nauðsynlegt fyrir sálartetrið

„Þetta var nauðsynlegt fyrir sálartetrið,“ sagði Jóhann Birnir Guðmundsson annar þjálfari Keflvíkinga eftir að liðið lagði Leikni 3:2 í síðustu umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í dag.

Þetta var annar sigur liðsins í deildinni. „Þetta gerir svo sem ekkert fyrir stöðuna en nauðsynlegt fyrir strákana að enda með sigri og taka eitthvað gott með sér úr sumrinu,“ sagði Jóhann Birnir.

Hann sagðist alveg reikna með að hann spilaði eitt sumar til viðbótar og þá með liði af Suðurnesjunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert