„Þetta var frábær leikur“

Laurent Blanc.
Laurent Blanc. AFP

„Þetta var frábær leikur. Chelsea-liðið sem fólk segir að sé í erfiðleikum sýndi að það er að ná vopnum sínum. Leikmenn liðsins voru agaðir, þeir vörðust vel og sóttu hratt fram völlinn þegar færi gafst,“ sagði Laurent Blanc þjálfari franska meistaraliðsins Paris SG eftir 2:1 sigur á móti Chelsea í Meistaradeildinni í kvöld.

„Við reiknuðum með erfiðum leik og það verður erfitt að mæta Chelsea á Stamford Bridge en ég held að leikmenn Chelsea muni segja það sama,“ sagði Blanc en hans menn slógu Chelsea út í 16-liða úrslitunum í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert