Jón Daði lék allan leikinn í tapi

Jón Daði Böðvarsson í leik með íslenska landsliðinu.
Jón Daði Böðvarsson í leik með íslenska landsliðinu. Adam Jastrzebowski / Foto Olimpik

Kaiserslautern tapaði fyrir Freiburg, 2:0, í þýsku B-deildinni í knattspyrnu í dag, en Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Kaiserslautern, eins og í hinum þremur leikjunum eftir að hann hóf að leika með liðinu eftir áramótin.

Nicolas Hoefler kom Freiburg yfir á 8. mínútu áður en Florian Niederlichner bætti við öðru í byrjun síðari hálfleiks.

Þetta var fyrsti tapleikur Kaiserslautern síðan 6. desember en liðið hafði ekki tapað síðustu fimm leikjum sínum.

Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Kaiserslautern og lék allan leikinn í dag en liðið er í 7. sæti með 31 stig eftir 23 umferðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert