Bragðdaufur grannaslagur í Liverpool

Liverpool-konan Missy Bo Kearns með boltann í dag.
Liverpool-konan Missy Bo Kearns með boltann í dag. Ljósmynd/Liverpool

Everton og Liverpool gerðu markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu á Goodison Park í dag. 

Leikið var á Goodison Park, aðalvelli karlaliðs Everton, fyrir framan tíu þúsund áhorfendur. 

Liverpool er í fjórða sæti deildarinnar með 29 stig í fjórða sæti deildarinnar en Everton er með 15 stig í níunda sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert