Sneggsta mark í sögu landsleikjafótboltans

Austurríksmenn fagna sneggsta markinu.
Austurríksmenn fagna sneggsta markinu. AFP/Tomas Benedikovic

Austurríkismaðurinn Christoph Baumgartner skráði nafn sitt í sögubækurnar er hann skoraði sneggsta mark í sögu landsleikjafótbolta karla í sigri á Slóvakíu, 2:0, í Bratislava í gær. 

Fór hann þá framhjá þremur leikmönnum og setti boltann í netið utan teigs eftir aðeins sex sekúndur. 

Kom markið þremur sekúndum fyrr en mark Lukas Podolski fyrir Þýskaland gegn Ekvador árið 2013, en hann skoraði eftir níu sekúndur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert