Venus Williams er úr leik

Venus Williams.
Venus Williams. AP

Venus Williams er úr leik á opna franska meistaramótinu í tennis en hún tapaði í dag í þriðju umferð gegn Jelenu Jankovic 6:4, 4:6 og 6:1. Williams lék til úrslita á þessu móti árið 2002 en hún tapaði gegn Jankovic í þriðju umferð á Wimbledon -meistaramótinu á síðasta ári. Jankovic er 22 ára gömul og er hún fædd í Serbíu og hefur hún aldrei sigrað á stórmóti en hún komst í undanúrslita á opna bandaríska meistaramótinu í fyrra. Williams hefur fimm sinnum sigrað á stórmóti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert