Tap hjá taflfélagi Hellis í Grikklandi

mbl.is

Taflfélag Hellis tapaði í gær fyrir SV Muelheim Nord í fimmtu umferð Evrópumóts taflfélaga í Grikklandi, með fimm vinningum gegn einum. Þeir Ingvar Þór Jóhannesson, og Hjörvar Steinn Grétarsson náðu jafntefli í sínum skákum, en Robert Lagerman, Sigurbjörn Björnsson, Omar Salama og Kristján Edvardsson töpuðu allir sínum skákum.

Fimmta umferð mótsins fer fram í dag, en þar mætir Taflfélag Bolungarvíkur Makedónska liðinu Alkaloid, meðan Hellismenn mæta Panevezys Chess Club frá Litháen.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert