Naumt tap á móti Litháen

Tinna Helgadóttir
Tinna Helgadóttir mbl.is/Golli

Íslenska badmintonlandsliðið tapaði 3-2 fyrir Litháen í öðrum leik sínum á HM sem fram fer í Kína.

Helgi Jóhannesson og Tinna Helgadóttir unnu 2-0 í tvenndarleiknum og Helgi og Magnús Ingi Helgason 2-1 í tvíliðaleik karla. Atli Jóhannesson tapaði 2-0 í einliðaleik karla, Karitas Ósk Ólafsdóttir einnig í einliðaleik kvenna og þær Tinna og Snjólaug Jóhannsdóttir töpuðu 2-0 í tvíliðaleik kvenna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert