Mótsmet Jóhönnu - ÍBA sigraði

Jóhanna Ingadóttir, Íþróttabandalagi Reykjavíkur, setur landsmótsmet í þrístökki á Akureyri …
Jóhanna Ingadóttir, Íþróttabandalagi Reykjavíkur, setur landsmótsmet í þrístökki á Akureyri í dag. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Jóhanna Ingadóttir, ÍBR, setti landsmótsmet í þrístökki á lokadegi Landsmóts UMFÍ á Akureyri í dag. Stökk 12,92 metra og bætti landsmótsmetið um hvorki meira né minna en 1,28 m. Þá bætti Ásdís Hjálmsdóttir, ÍBR, persónulegt met í kúluvarpi; kastaði 14,47 m. ÍBA sigraði í heildarstigakeppni mótsins.

ÍBA hlaut alls 1899 stig. Í öðru sæti, með 1557,5 stig, varð HSK, í þriðja sæti, með 1366,5 stig, UMSK og í fjórða sæti varð sameiginlegt lið UMSE og UFA með 1155,5 stig.

Ítarlega verður fjallað um Landsmót UMFÍ í Morgunblaðinu á morgun.

Þröstur Guðjónsson, formaður Íþróttabandalags Akureyrar, með bikarinn sem bandalagið fékk …
Þröstur Guðjónsson, formaður Íþróttabandalags Akureyrar, með bikarinn sem bandalagið fékk fyrir sigur í heildarstigakeppninni. mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Heimir Þórisson fagnar eftir að hann komist upp í fyrsta …
Heimir Þórisson fagnar eftir að hann komist upp í fyrsta sætið í þrístökkini í dag - í næst síðustu umferðinni. mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Vilhjálmur Einarsson, silfurverðlaunahafi í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne 1956, …
Vilhjálmur Einarsson, silfurverðlaunahafi í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne 1956, afhenti Heimi Þórissyni gullverðlaun fyrir þrístökkið í dag. mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Ásdís Hjálmsdóttir í kúluvarpskeppninni í dag.
Ásdís Hjálmsdóttir í kúluvarpskeppninni í dag. mbl.is/Skapti Hallgrímsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert