Orri Blöndal var valinn besti leikmaður Íslands í leiknum gegn Ástralíu í kvöld sem Ísland vann 6:1 í Skautahöllinni í Laugardal.
„Loksins náðum við að spila almennilegan leik. Við unnum Belga 3:0 og ég veit ekki hvað gerðist í restina á hinum tveimur leikjunum (gegn Serbíu og Spáni) en loksins náðum við að sýna okkar rétta andlit og berjast eins og hundar,“ sagði Orri meðal annars í samtali við mbl.is að leiknum loknum í kvöld en viðtalið í heild sinni má sjá á meðfylgjandi myndskeiði.
Orri sagði einnig að landsliðsþjálfarinn Tim Brethén hafi rifið landsliðsmennina upp fyrir leikinn en liðið tapaði fyrir Spáni í gærkvöldi 2:4 þar sem heldur dauft var yfir íslenska liðinu.