Stemningin var ólýsanleg á Allianz Riviera-leikvanginum í Nice í Frakklandi þegar dómarinn flautaði til leiksloka í leik Englands og Íslands í kvöld. Allt ætlaði um koll að keyra, eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.
Gleðin var fölskvalaus og er erfitt að lýsa stemningunni í orðum. Um þrjú þúsund Íslendingar réðu sér einfaldlega ekki fyrir kæti.
Íslendingar sigruðu 2-1 og eru komnir í átta liða úrslit Evrópukeppninnar í knattspyrnu.