Sannarlega ömurleg ummæli hafa spurst út frá gamalli tennisstjörnu um óléttu Serenu Williams, einnar fremstu tenniskonu síðari ára, og er hafin rannsókn á málinu.
Rúmenska tenniskonan Simona Halep var að svara spurningum á fréttamannafundi eftir leik í Fed-bikarnum þar sem hún var meðal annars spurð út í tíðindin frá Serenu. Á meðan heyrðist í þjálfara hennar hvísla að sessunaut sínum:
„Við skulum sjá hvernig það verður á litinn. Ætli þetta verði súkkulaði með mjólk?“ Þjálfari Halep er hinn sjötugi Ilie Nastase, sem var á sínum tíma efsti maður heimslistans og einn besti leikmaður sinnar kynslóðar.
Talsmaður Alþjóðatennissambandsins sagði við BBC að ummælin hafi komið inn á borð sambandsins og hafin sé rannsókn á málinu. „Við umberum ekki niðurlægjandi ummæli eða hegðun af nokkurri tegund,“ sagði hann.
Serena er gift Alexis Ohanian sem er einn af stofnendum Reddit-vefsíðunnar. Hún hefur unnið 23 risatitla, fleiri en nokkur önnur síðan opnu meistaramótin hófu göngu sína árið 1968.