McDowell og Kahn jafnir fyrir lokadaginn

Graeme McDowell.
Graeme McDowell. Reuters.

Graeme McDowell frá Norður-Írlandi og Simon Khan frá Englandi deila efsta sætinu á Opna skoska meistaramótinu fyrir lokadaginn en þeir eru báðir á 10 höggum undir pari vallar. Ef McDowell tryggir sér sigur yrði það annar sigur hans á keppnistímabilinu á Evrópumótaröðinni og hann væri þá búinn að tryggja sér sæti í Ryderliði Evrópu.

Englendingurinn Ross Fisher, sem sigraði á Opna Evrópumótinu um s.l. helgi, er tveimur höggum á eftir efstu mönnum líkt og Miguel Angel Jimenez frá Spáni, Indverjinn Jeev Milkha Singh og Richard Green frá Ástralíu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert