Birgir þreifar sig áfram

Birgir Leifur Hafþórsson, sexfaldur Íslandsmeistari úr GKG, lék fyrsta hringinn á tveimur undir pari á Akureyri í dag og gerði fá mistök. 

Birgir var sáttur við byrjunina í mótinu þegar mbl.is ræddi við hann enda fékk hann aðeins einn skolla á hringnum sem kom á 15. braut. 

Birgir segir mjög mikilvægt að hitta brautir á Jaðarsvelli. „Ef þú ert í karganum þá þarftu að hugsa svolítið meira,“ sagði Birgir meðal annars en hann hitti margar brautir og margar flatir í tilætluðum höggafjölda. 

Viðtalið við Birgi má sjá í meðfylgjandi myndskeiði. 

Birgir Leifur er tveimur höggum á eftir Aroni Snæ Júlíussyni …
Birgir Leifur er tveimur höggum á eftir Aroni Snæ Júlíussyni sem er til vinstri á myndinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert