Svíar hafa verið Íslendingum erfiðir

Ólafur Stefánsson skýtur að marki í leik gegn Svíum.
Ólafur Stefánsson skýtur að marki í leik gegn Svíum. Ómar Óskarsson

Íslendingar leika sinn fjórða upphafsleik á stórmótum gegn Svíum, þegar þeir mæta þeim í kvöld á Evrópumóti landsliða í Þrándheimi í Noregi. Fyrri þrír upphafsleikirnir hafa allir tapast.

Þess má geta að Svíar hafa yfirleitt verið Íslendingum erfiðir á stórmótum og hafa Íslendingar aðeins einu sinni náð að leggja Svía að velli á stórmóti – það var í HM í Tékkóslóvakíu 1964, en þá voru Svíar lagði að velli í sögufrægum leik í Bratislava, 12:10.

Eftir það kom hin fornfræga „Svíagrýla“ til sögunnar og hrellti íslenska handknattleiksmenn ár eftir ár.

Sjá nánar umfjöllun um viðureignir Íslands og Svíþjóðar í átta síðna íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert