Arnór með 9 mörk

Arnór Atlason, AG
Arnór Atlason, AG mbl.is/Gísli Baldur Gíslason

Arnór Atlason átti stórleik fyrir AG Köbenhavn er liðið lagði Mors-Thy 38:32 í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik  í gær.

Arnór var markahæstur í liði sínu með 9 mörk og Snorri Steinn Guðjónsson gerði tvö. 

AG er sem fyrr efst í deildinni með 41 stig en liðið hefur gert eitt jafntefli í þeim 21 leik sem liðið hefur leikið í deildinni, aðrir leikir hafa unnist. Århus kemur þar á eftir með 31 stig en Mors-Thy, sem Jón  Þorbjörn Jóhannsson leikur með er í 11. sæti með 11 stig. Jón skoraði ekki í leiknum í gær.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert