Valur og ÍBV áttust við öðru sinni í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik þegar Valsmenn tóku á móti Eyjamönnum á Hlíðarenda klukkan 16. Valur sigraði 28:24 eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í leikhléi og staðan í rimmunni er 1:1. ÍBV vann fyrsta leik liðanna í Vestmannaeyjum í fyrrakvöld, 32:28 en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslit.
Valsmenn virtust alltaf líklegri til þess að jafna leikinn heldur en Eyjamenn að komast í 2:0, ef frá eru taldar fyrstu tíu mínútur leiksins. Næsti leikur verður í Vestmannaeyjum og hann verður gríðarlega mikilvægur fyrir framgang rimmunnar. Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu hér á mbl.is sem má sjá hér fyrir neðan.
Valur | 28:24 | ÍBV | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
60. mín. Valur tapar boltanum | ||||
Augnablik — sæki gögn... |