Flensa í herbúðum Þjóðverja

Lukas Podolski er með flensu.
Lukas Podolski er með flensu. Reuters

Flensa herjar á þýska landsliðshópinn í knattspyrnu en Þjóðverjar mæta Úrúgvæjum í leik um þriðja sætið á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu annað kvöld. Þjálfarinn Joachim Löw liggur í bælinu með flensu svo og leikmennirnir Philipp Lahm og Lukas Podolski.

Þjóðverjar vonast til þess að Lahm og Podolski verði búnir að ná sér í tæka tíð og eins markaskorarinn Miroslav Klose sem hefur átt við bakmeiðsli að stríða. Klose á möguleika á að slá markametið í úrslitakeppni HM. Hann hefur skorað 14 mörk, einu færra en Brasilíumaðurinn Ronaldo.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert