Mamadou Sakho, miðvörður franska landsliðsins í knattspyrnu og Liverpool, gæti átt leikbann yfir höfði sér á HM eftir að myndband sýndi að hann hefði slegið Oswaldo Minda, leikmann Ekvador, í leik þjóðanna í kvöld.
Frakkar tryggðu sér sigur í E-riðlinum með markalausu jafntefli og þeir mæta Nígeríu í sextán liða úrslitunum. Aganefnd FIFA hefur heimild til að taka fyrir brot sem dómarinn sér ekki og þetta atvik verður væntanlega skoðað nánar á morgun.