NBA: Boston enn ósigrað

Richard Jefferson og Paul Pierce í leik New Jersey og …
Richard Jefferson og Paul Pierce í leik New Jersey og Boston. Reuters

Lið Boston Celtics er enn ósigrað í riðlakeppni bandarísku NBA körfuboltadeildarinnar en liðið vann New Jersey Nets, 112:101, í New Jersey í nótt. Hefur Boston unnið fyrstu fimm leiki sína í deildinni í haust. Paul Pierce var stigahæstur í nótt með 28 stig.

Önnur úrslit í nótt voru þessi:

Portland Trail Blazers 91, Dallas Mavericks 82
Sacramento Kings 100, Minnesota Timberwolves 93
Phoenix Suns 106, Orlando Magic 96
Utah Jazz 118, Memphis Grizzlies 94
Denver Nuggets 113, Indiana Pacers 106
Toronto Raptors 101, Chicago Bulls 71.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert