ÍR lagði Snæfell í Stykkishólmi

Þrír leikir voru í Icelands Express deild karla í körfubolta í kvöld. ÍR krækti í sætan sigur í Stykkishólmi, Tindastóll vann Skallagrím og í Njarðvík höfðu heimamenn betur gegn Þór frá Akureyri.

Lokatölurnar í Stykkishólmi  urðu 86:91 fyrir ÍR þar sem Eiríkur Önundarson gerði 21 stig fyrir ÍR og Sveinbjörn Claesen 20 en hjá heimamönnum var Sigurður Þorvaldsson atkvæðamestur með 28 stig.

Igor Beljanski gerði 31 stig fyrir Skallagrím á Sauðárkróki en það dugði ekki því heimamenn unnu 92:67 og var Flæng stigahæstur með 23 stig hjá Tindastóli.

Talsverð spenna var í Njarðvík þar sem Þór var í heimsókn, en Njarðvíkingar höfðu þó betur á endanum, 92:79. Magnús Gunnarsson gerði 27 stig fyrir Njarðvík og Logi Gunnarsson 25 en hjá Þór var Isam með 25 stig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert