Öruggt hjá Hamri - Keflavík vann Snæfell

Ágúst Björgvinsson þjálfari Hamars fagnaði sigri með sínu liði í …
Ágúst Björgvinsson þjálfari Hamars fagnaði sigri með sínu liði í kvöld. Ómar Óskarsson

Hamar og Tindastóll áttust við í úrvalsdeild karla í kvöld í Hveragerði. Marvin Valdimarsson skoraði 25 stig fyrir Hamar sem sigraði 80:68. Svavar Birgisson var stigahæstur í liði Tindastóls með 17 stig sem er án stiga eftir fjóra leiki en Hamar er með 4 stig eftir fjóra leiki. Keflavík sigraði Snæfell 90:76 þar sem að Rashon Clark skoraði 21 stig fyrir Keflavík og Þröstur Leó Jóhannsson 19. Hlynur Bæringsson skoraði 20 stig fyrir Snæfell.

Tölfræði Hamar - Tindastóll.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert