West tryggði níunda sigurinn í röð

David West var hetja New Orleans í nótt.
David West var hetja New Orleans í nótt. Reuters

David West tryggði New Orleans Hornets sinn níunda sigur í röð í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar hann skoraði sigurkörfuna gegn Oklahoma City Thunder, 91:89, þegar hálf sekúnda var eftir af viðureign liðanna.

New Orleans er komið í þriðja sæti Vesturdeildarinnar en Oklahoma er í fjórða sætinu. New Orleans hélt stigahæsta leikmanni deildararinnar, Kevin Durant, algjörlega niðri í fjórða leikhluta. Hann hafði gert 22 stig fram að því og varð að láta þar  við sitja. Chris Paul skoraði 24 stig fyrir New Orleans og átti 9 stoðsendingar.

Staðan í NBA-deildinni.

Úrslitin í nótt:

New Jersey - Cleveland 103:101
Orlando - Detroit 96:103
Philadelphia - Phoenix 105:95
Toronto - Memphis 98:100
New York - Washington 115:106
Chicago - Milwaukee 92:83
Minnesota - Houston 125:129
New Orleans - Oklahoma 91:89
Portland - Sacramento 81:96
Golden State - San Antonio 102:113

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert