Helgi: Hef áhyggjur af hugarfari leikmanna

Hugarfar leikmanna Grindavíkur var helsta áhyggjuefni þjálfara liðsins, Helga Jónasar Guðfinnssonar eftir sigur á Haukum í tvíframlengdum leik. Lokatölur voru 94:93 en það eina jákvæða sem Helgi gat tekið frá leiknum var hvernig liðið lék á síðustu mínútum hans og náði að tryggja sér sigur.

Hann sagði greinilegt að breytinga væri þörf á hugarfari leikmanna sem byrjuðu leikinn alls ekki vel og náðu í raun aldrei að sína sitt rétta andlit. Það spilar þó enginn betur en andstæðingurinn leyfir og Haukarnir gerðu gestunum svo sannarlega erfitt um vik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert