Stóð fyrir sínu gegn stórliðinu

Martin Hermannsson lék vle með Alba Berlín.
Martin Hermannsson lék vle með Alba Berlín. Ljósmynd/FIBA

Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson átti flottan leik fyrir þýska liðið Alba Berlín er það mátti þola naumt tap á heimavelli, 86:79, gegn spænska stórliðinu Real Madríd í Evrópudeildinni í körfubolta í kvöld.

Keppnin er sú sterkasta í álfunni og er Real í toppsætinu með 24 sigra og sex töp. Martin og félagar eru í botnsætinu með fimm sigra og 25 töp.

Martin skoraði 13 stig í kvöld, gaf fimm stoðsendingar og tók eitt frákast á 24 mínútum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert