Grindavík skellti bikarmeisturunum

Sarah Sofie Mortensen skoraði 20 stig.
Sarah Sofie Mortensen skoraði 20 stig. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Grindavík vann í kvöld öruggan sigur á deildar- og bikarmeisturum Keflavíkur í úrvalsdeild kvenna í körfubolta. Grindavík á því enn möguleika á að ná öðru sætinu af Njarðvík í lokaumferðinni.

Tímabil Keflavíkur hefur verið sérlega gott og er liðið búið að vera með yfirburði á leiktíðinni. Grindvíkingar voru hins vegar mun sterkari í kvöld.

Staðan í hálfleik var 45:31 og jókst munurinn lítillega í seinni hálfleik.

Sarah Mortensen var stigahæst hjá Grindavík með 20 stig og tók sú danska einnig níu fráköst. Eve Braslis gerði 19 stig. Birna Valgerður Benonýsdóttir skoraði 16 stig fyrir Keflavík og Daniela Wallen 13.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert