Martin drjúgur í öruggum sigri

Martin Hermannsson lék vel fyrir Alba Berlín í kvöld.
Martin Hermannsson lék vel fyrir Alba Berlín í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, lét vel að sér kveða þegar lið hans Alba Berlín vann öruggan sigur á Bonn, 90:69, í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Alba er í öðru sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði deildarinnar, Bayern München, þegar tvær umferðir eru óleiknar áður en úrslitakeppnin um þýska meistaratitilinn hefst.

Martin nýtti mínúturnar vel í kvöld þegar hann skoraði 12 stig og gaf fjórar stoðsendingar á 21 mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert