Guðjón Valur líklega á leikskýrslu

Guðjón Valur Sigurðsson verður á leikskýrslu gegn Rússum en spurningin …
Guðjón Valur Sigurðsson verður á leikskýrslu gegn Rússum en spurningin er hversu mikið hann getur spilað. mbl.is/Brynjar Gauti

Nokkrar líkur eru á að Guðjón Valur Sigurðsson spili með íslenska landsliðinu í nótt í fyrsta leik liðsins á Ólympíuleikunum en þá mætir liðið Rússum.

Þetta er mat Einars Þorvarðarsonar, framkvæmdastjóra HSÍ, en sem kunnugt er tognaði Guðjón Valur á æfingu í gær og var óttast að hann væri alveg úr leik. Svo er þó ekki og er Einar vongóður um að Guðjón verði klár í leikinn og fer næsta örugglega á leikskýrslu fyrir leikinn.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert