Avion gerir yfirtökutilboð í kanadískt frysti- og kælifyrirtæki

Baldur Guðnason, forstjóri Eimskips,
Baldur Guðnason, forstjóri Eimskips,

Avion Group fyrir hönd nýstofnaðs dótturfélags, Eimskip Atlas Canada, hyggst gera formlegt yfirtökutilboð í allt hlutafé Atlas Cold Storage Incom Trust (ACSIT). Hljóðar tilboðið upp á 574 milljónir Kanadadollara, 36,4 milljarða íslenskra króna. Félagið er skráð í Kauphöllinni í Toronto í Kanada.

Eimskip Atlas Canada hefur gert hluthafasamkomulag við tvo stóra hluthafa ACSIT, Avion Group og KingStreet. Avion Group hefur þegar eignast 9,5% hlutafjár í félaginu og KingStreet ræður yfir 4,4% af hlutafé í ACSIT. Samtals ráða þessir hluthafar nú yfir 13,9% hlutafjár í félaginu.

Gengið hefur verið frá fjármögnun yfirtökunnar að fullu og koma Royal Bank of Canada (RBC Capital Markets) og Canadian Imperial Banking Corporation (CIBC World Markets) til með að fjármagna tilboðið. Að öðru leyti er tilboðið háð hefðbundnum skilyrðum, sem eru m.a. að meira en 66 2/3% útistandandi hluta fáist keyptir og öll tilskilin leyfi sem Avion Group telur nauðsynleg fáist. Komi til yfirtökunnar er hún háð samþykki samkeppnisyfirvalda í Bandaríkjunum og Kanada, að því er segir í tilkynningu.

Atlas Cold Storage sem er í 100% eigu ACSIT rekur 53 frysti- og kæligeymslur í Norður Ameríku. Atlas býður upp á alhliða geymslu á matvælum fyrir framleiðendur, dreifingaraðila og birgja í matvælaiðnaði í Norður Ameríku.

Tilboð Avion Group hljómar upp á 7 Kanadadali fyrir hvern hlut í félaginu. Heildarvirði félagsins (enterprise value) er um 574 milljónir Kanadadollara eða rúmlega 37 milljarða íslenskra króna.

Velta Atlas Cold Storage árið 2005 var um 470 milljónir Kanadadalir(rúmlega 30 milljarðar króna) og EBITDA 55 milljónir Kanadadalir (rúmlega 3,5 milljarðar króna).

Atlas Cold Storage, rekur 53 frystigeymslur á 49 stöðum víðsvegar í Norður-Ameríku. Fjórtán af þessum geymslum eru leigðar af félaginu en 39 eru í eigu Atlas Cold Storage. Heildareignir Atlas eru bókfærðar á sjötta hundrað milljónir Kanadadollara og engin viðskiptavild er í bókum félagsins.

Gangi þessi kaup eftir nánast tvöfaldast velta Eimskips og verður um sjötíu milljarðar íslenskra króna á ársgrundvelli, að því er segir í tilkynningu.

Magnús Þorsteinsson stjórnarformaður Avion Group segir að tilboðið sé sanngjarnt verð fyrir Atlas Cold Storage. „Við höfum skoðað ýmis fjárfestingatækifæri í Norður Ameríku og það eru ýmis tækifæri opin fyrir okkur en við stefnum að því að ljúka þessum kaupum og leitast eftir að samhæfa rekstur Atlas við Eimskip. Það er hins vegar núverandi hluthafa Atlas að leggja sitt mat á tilboð okkar,” að sögn Magnúsar í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK